Uppskriftin er einföld, tekur aðeins 30 mínútur og gerir hún um 60-65 kökur.
Innihald:
220 g smjör
1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
2 egg
2 tsk. vanilludropar
1 tsk. matarsódi
2 tsk. lyftiduft
1/2 tsk. salt
3 bollar hveiti
150 g lakkrískurl með súkkulaði
100 g súkkulaði í kökurnar
50 g súkkulaði til skrauts (val)
Aðferð:
Smjörið er sett í hrærivélina og hrært þar til það verður létt og ljóst, þá er púðursykrinum og sykrinum bætt við og hrært saman.
Næst fara egg og vanilludropar út í og hrært vel.
Þurrefnunum er blandað saman í sér skál og þeim svo bætt við í hrærivélina.
Súkkulaði og lakkrískurli hrært saman við í lokinn.
Litlar kúlur eru mótaða á bökunarpappír, eða um ein teskeið af deigi og þær eru bakaðar í ofninum við 180 gráður og blæstri í 8-10 mínútur.
Mér fannst skemmtilegt að poppa aðeins upp á kökurnar og skreyta þær með súkkulaði. Þá er súkkulaði brætt yfir vatnsbaði og þær skreyttar eins og ykkur sýnist.
Uppskrift Gott í Matinn
Höfudur : Gígja S. Guðjóns
Fleiri uppskriftir frá mér er að finna á www.facabook.com/gigjas og www.gigjas.com